Alfa Framtak fjárfestir í Samherja fiskeldi og NP Innovation

Alfa Framtak hefur lokið við fjárfestingu í tveimur fyrirtækjum tengdum landeldi — vaxandi atvinnugrein sem stendur á tímamótum hér heima og erlendis.

Í gegnum framtakssjóðinn AF3 hefur félagið fjárfest í Samherja fiskeldi, dótturfélagi Samherja hf., til að styðja við uppbyggingu á Eldisgarðinum —nýrri landseldisstöð á Reykjanesi. Þegar stöðin verður komin í fullan rekstur er gert ráð fyrir að hún framleiði allt að 30.000 tonn af laxi á ári, með 100% endurnýjanlegri orku og skapi yfir 100 ný störf á svæðinu.

Einnig hefur AF3 fjárfest í NP Innovation AB, sænsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í vatnshreinsilausnum fyrir fiskeldi. Fjárfestingin, sem er gerð í samstarfi við framtakssjóðinn IS Haf er ætlað að styrkja áframhaldandi vöxt og nýsköpun NP Innovation á alþjóðavísu. Félagið hefur selt til viðskiptavina víðsvegar um heiminn og skapað sér stöðu sem leiðandi aðili í framleiðslu á búnaði sem nýtist við vatnshreinsun í fiskeldi.

Markmið Alfa Framtaks er að fjárfesta í fjölbreyttum fyrirtækjum og styðja við vöxt þeirra. Við sjáum að landeldi er í örum vexti á heimsvísu. Eftirspurn eftir sjálfbærum sjávarafurðum eykst stöðugt og kallar á skalanlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar lausnir í matvælaframleiðslu. Með þessum tveimur fjárfestingum erum við að leggja okkar af mörkum við framþróun greinarinnar - þar sem alþjóðleg tækni og íslensk sérþekking koma saman.,“ segir Markús Árnason, fjárfestingastjóri Alfa Framtaks.

Um Alfa Framtak

Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða og hefur langa reynslu af fjárfestingum, að styðja við vöxt og að leiða umbreytingar. Markmið Alfa Framtaks er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir sig jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi. Félagið rekur í dag þrjá framtakssjóði - AF1, AF2 og AF3 og er með um 45 milljarða króna í áskriftarloforð.

Next
Next

Alfa Framtak klárar fjár­mögnun á 22 milljarða fram­taks­sjóði