Alfa Framtak fjárfestir í Nóa Síríus

AF3, framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks, hefur gengið frá samkomulagi við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus. Við kaupin færist Nói Síríus aftur í innlenda eigu eftir árangursríkan tíma undir eignarhaldi Orkla Snacks.

Nói Síríus hf. var stofnað árið 1920 og er eitt þekktasta framleiðslu- og markaðsfyrirtæki landsins. Í yfir hundrað ár hefur félagið sinnt framleiðslu og dreifingu á súkkulaði og öðrum matvörum og vörumerki þess eru djúpt gróin í íslensku menningarlandslagi. Orkla Snacks umbreytti fyrirtækinu úr rótgrónu fjölskyldufyrirtæki í framsýnt framleiðslufyrirtæki með skýra áherslu á gæði og sterk vörumerki. Alfa Framtak mun byggja á þessum sterka grunni og styðja við næsta vaxtarskeið félagsins.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og LOGOS voru ráðgjafar seljanda í viðskiptunum. Ráðgjafar kaupanda voru BBA//FJELDCO og KPMG.

Next
Next

Árni Jón fer yfir sögu og uppbyggingu Alfa Framtaks