Alfa Framtak fjárfestir í Tixly

Alfa Framtak hefur komist að samkomulagi um fjárfestingu í hugbúnaðarfyrirtækinu Tixly. Félagið stefnir að frekari vexti á erlendum mörkuðum. 

Framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks, hefur komist að samkomulagi um fjárfestingu í hugbúnaðarfyrirtækinu Tixly. Um er að ræða íslenskt félag sem sérhæfir sig í miðasölulausnum fyrir viðburðarhaldara á borð við menningar- og viðburðarhús. Fyrirtækið hefur vaxið verulega á síðustu árum og er nú með starfsemi í tólf löndum, þar með talið Noregi, Danmörku, Belgíu og Hollandi. Fyrirtækið gengur undir vörumerkinu Tix á Íslandi og var stofnað árið 2014. Framkvæmdastjóri félagsins er Hrefna Sif Jónsdóttir og alls starfa 46 manns hjá fyrirtækinu.

Fjárfesting Alfa Framtak í Tixly samanstendur af kaupum á hlutafé af hluthafa sem og fjármögnun sem á að styðja við vaxtaráform félagsins á erlendri grundu. Lykilhluthafar Tixly eftir viðskiptin verða, ásamt sjóði Alfa Framtaks, Sindri Már Finnbogason, Björn Steinar Árnason, sem einnig eru stofnendur félagsins, ásamt nokkrum af lykilstarfsmönnum félagsins.

Árni Jón Pálsson, fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtak, sér mikil tækifæri hjá félaginu og þá sérstaklega í aukinni sókn erlendis: „Tixly hefur á síðustu árum þróað öfluga lausn sem er fremst á sínu sviði í dag. Hún er notendavæn og einföld í innleiðingu og hefur reynst viðskiptavinum félagsins vel víða um heim. Sókn félagsins á erlendri grundu hófst að alvöru fyrir um tveimur árum og hefur félagið náð miklum árangri síðan þá. Með fjárfestingunni ætlum við að styðja við félagið þannig að það nái markmiðum sínum á næstu árum“.

Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly fagnar aðkomu Alfa Framtaks og telur að fjármögnunin geri teyminu kleift að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. „Tixly hefur verið í hraðri sókn á alþjóðlegum vettvangi og er nú með starfsemi í ríflega 12 löndum. Umfang félagsins hefur því aukist verulega og er nú rétti tímapunkturinn að fá virkan fjárfesti að borðinu, sem getur stutt við vegferðina með fjármagni og þekkingu. Framundan eru stór verkefni sem snerta allt frá vöruþróun til sölu á nýjum markaðssvæðum.“

Alfa Framtak ehf. er rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Alfa Framtak sérhæfir sig í fjárfestingum og stuðningi við stjórnendur, athafnafólk og fyrirtækjaeigendur sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið félagsins er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir sig jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Next
Next

Alfa Framtak fjárfestir í Hótel Umi